Súkkulaði...
Um helgina var Árshátíð FNV haldin og er hægt að segja að það hafi verið mjög skemmtileg árshátíð ! Mín fyrsta árshátíð í þessum skóla og eflaust mín síðasta. Mér tókst ætlunarverk mitt og mætti á Árshátíðina í kjól sem ég saumaði alveg sjálf, henni "Armeriu" ég mun setja mynd af henni á góðum degi :) Ég get með stóru brosi sagt að ég varð ekki fyrir vonbrigðum á neinn hátt þótt Árshátíðin hafi verið fámenn....en eins og sagt er Fámennt enn Góðmennt !
Eitt sem ég held samt að margir söknuðu !....það var enginn desert !! Ég hef aldrei á minni litlu lífsleið langað meiri í súkkulaði-köku og þá um kvöldið...híhíhí
En í tilefni þess ætla ég að láta Dee-sæta súkkulaði-köku uppskrift fylgja.
Súkkulaði Sprengja Á' la Sara
Botn :
* 4 egg
* 3 dl sykur
* 1 dl hveiti
* 200 g smjör
* 200 g suðusúkkulaði
* 100 g heslihnetur
* Ávextir að eign vali s.s. jarðaber, bláber, ferskur ananas o.fl.
Krem :
* 175 g suðusúkkulaði
* 1 stórt mars
* 1 dl rjómi
Aðferð :
Smjör og súkkulaði brætt saman og látið kólna. Egg og sykur þeytt saman - létt og ljóst. Þegar súkkulaði blandan er orðin vel volg er henni hrært varlega saman við sykur/eggja blönduna. Hnetum og hveiti bætt við og hrært mjög varlega með sleikju.
Þetta svo sett í vel smurt form og bakað inn í miðjum ofni við 180 °C í 35 - 40 mín
Suðusúkkulaðinu, marsinu og rjómanum er öllu skellt í pott og brætt saman. Þegar kakan er búin að ná að kólna er kreminu hellt jafn yfir hana. Svo lætur maður ímyndunaraflið ráða og finnur sér bragð góða ávexti og skreytir :)
Verði okkur að góðu ...hihiih :)
0 Comments:
Post a Comment
<< Home